|
Hva�?�?�?°a vi�?�?�?°bur�?�?�?°ur ???
Fyrir 958 dögum
|
05.11.2008 14:00:35 / kristinbirna
Elsku Helga. Þá er ég formlega hætt að blogga hérna þangað til ég keppi næst í fitness svo þú getur hætt að kíkja hingað inn reglulega  Ég læt þig vita þegar blogg skriftir hefjast aftur  Kveðja Kristín Birna
»
01.02.2008 09:29:07 / kristinbirna
Þá er ég endanlega búin að ákveða mig og er soldið síðan ég gerði það. Ég ætla ekki að vera með um páskana. Þegar ég var búin að ákveða þetta var mér rosalega létt. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því hversu þungt þetta lá á mér og ég er mjög svo sátt við þá ákvörðun sem ég tók. Ég stefni því bara á haustið og reyni að byggja upp eins og ég get þangað til  Ég fann bara þegar ég var að byrja að skera aftur hvað ég var ekki tilbúin til þess og kom mér ekkert almennilega í gang, og kannski var það bara líkaminn að segja stopp, ekki meira í bili. Enda fann ég líka að mér fannst ekki eins gaman að fara á æfingu því það var orðin miklu meiri kvöð að fara, heldur en fara af því að mér finnst það gaman, og það hefur alltaf verið þannig að mér finnst gaman að fara á æfingu. Og þegar ánægjan var ekki lengur til staðar þá sá ég að ég þurfti bara smá pásu og koma mér svo í gang aftur. Ég ætla samt að reyna að halda áfram að blogga eitthvað og leyfa ykkur að fylgjast með hvernig uppbygging gengur  kv. Kristín Birna
»
21.01.2008 13:15:59 / kristinbirna
Ég fékk spurningu frá Ingunni sem comment á síðust færslu núna um helgina um það hvernig gengi. Ástæðan fyrir því að ég er ekki búin að skrifa núna neitt síðan í byrjun mánaðarinns er sú að ég er að gugna Jebb, þið lásuð rétt! Ég er búin að vera að hugsa þetta núna í tvær vikur, á ég eða á ég ekki, og ég bara hreinlega kemst ekki að niðurstöðu. Mig langar rosalega mikið að vera með og allt þetta umstang í kringum mótið og allt sem þessu fylgir finnst mér ofsalega gaman, en... það eru líka miklar fórnir sem þarf að færa við undirbúning sem þennan og það er það sem er að halda aftur að mér. Mig langar nefnilega líka alveg rosalega að vera bara "venjuleg". Stunda ræktina af ánægju og skynsemi, passa upp á hollt mataræði og leyfa mér einn nammidag í viku þar sem allt má, ekki bara smá, oggupoggu pínu og fá svo samviksubit yfir því litla sem fer inn umfram það sem má. Ég held maður þurfi bara að vera rosalega mikið andlega tilbúin að takast á við þetta og ég held ég sé ekki í því ástandi akkúrat núna, og ég hreinlega kem mér ekki í gang að byrja á fullu í skurði. En auðvitað er gaman að uppskera árangur erfiðiðsins, ekki spurning, og ég er ekkert hætt þó svo að ég taki kannski þá ákvörðun um að keppa ekki núna um páskana. Ég reyni þá frekar að stefna að því að byggja betur upp og kem svo sterkari inn á haust. Þetta kemur í ljós  kv. Kristín Birna
»
03.01.2008 16:20:39 / kristinbirna
Þá er niðurskurður hafinn á nýjan leik á nýju ári. Ekki nema rétt rúmar 11 vikur í mót. Í þetta sinn þarf ég ekki að taka af mér einhver 14 kg eins og í síðustu skipti, svo þessi niðurskurður ætti að verða auðveldari fyrir vikið. Súkkulaði gúffinu er því lokið í bili og alveg komin tími til þar sem mín er búin að eiga heima ofan í nammiskálunum um jólin, ekki gott mál það en það er nauðsynlegt að fá smá útrás líka fyrir nammifíkilinn í sér svo lengi sem maður festist ekki í því fari í of langan tíma í einu. Í gær las ég á blogginu hennar Valdísar að hún sé að fara að keppa líka og ég heyrði í Berglindi í gær og hún ætlar að skella sér í slaginn .... og svo veit ég að Kristjana er mjög heit þannig að þetta verður bara gaman!! Svo nú eru bara skemmtilegir tímar framundan og ég hlakka bara til að takast á við allt saman  kv. Kristín Birna
»
06.12.2007 13:15:35 / kristinbirna
Nú styttist óðum í jólin og í tilefni þess er síðan komin í jólabúninginn. Maður þarf aðeins að reyna að komast í jólafílinginn Nú er meira að segja farið að snjóa úti sem gerir allt mun jólalegra heldur en blessaða rigningin. Og fyrst ég er nú farin að tala um jólin, matar og sætinda hátíðina miklu langar mig til þess að hvetja alla til að halda áfram að vera duglegir að mæta í ræktina, alla vega til að halda sér við þó ekki sé það meira en það. Þá á maður líka miklu meira skilið að leyfa sér eitthvað til tilbreytingar og gera sér daga mun á aðventunni og yfir hátíðarnar  Ég hef núna mikið verið að spá og ég held að það sé bara betra að vera að kötta heldur en að vera ekki að kötta. Jebb, hljómar örugglega undarlega, en það er smá sannleikur í þessu. Þegar maður er að kötta þá er búið að taka ákvörðun um það að fara að keppa þennan ákveðna dag og útrætt mál. Þá eru bara ákveðnar reglur sem gilda og freistingarnar eru bara ekki til staðar, nammið í nammiskálinni inn á kaffistofu eru bara fallegir litskrúðugir steinar í skál fyrir mér, þetta er ekki nammi, því ég er búin að taka þá ákvörðun að fara að keppa og fylgi því þeim „reglum“ sem fylgir því. En núna... já, þá stend ég í stöðugum barningi við sjálfa mig á hverjum degi. Dæmi: „Oh mig langar í, nei ég ætla ekki að fá mér, ...en bara pínu, nei þú getur ekki fengið þér BARA pínu, veist alveg hvernig það endar..., en ég er búin að vera svo dugleg , ég á þetta alveg skilið, nei nei og aftur NEI!!!“ Ekki gaman að standa í þessu á hverjum degi, þá held ég að hitt sé bara betra En nóg um mataræði (eða nammi öllu heldur) og að æfingum. Þá ganga lyftingar bara nokkuð vel þessa dagana. Er að taka miklu þyngra en ég er vön sem er bara gott mál. Hins vegar gengur ekki alveg nógu vel að minnka brennsluna Þegar maður er búin að vera að brenna tvisvar á dag í næstum 5 vikur þá er mjög erfitt að keyra sig niður! En það er allt að koma  kv. Kristín Birna
»
27.11.2007 22:32:05 / kristinbirna
Hvað þá??? Jú þá hefst uppbygging í ca 5 - 6 vikur þangað til næsti niðurskurður hefst fyrir Íslandsmótið um páskana. Það eru bara 17 vikur í næsta mót, það er ekki neitt!! Þannig að planið núna er að að lyfta þungt og reyna að stækka aðeins vöðvana og brenna minna. En ég verða að segja að laugardagurinn var æðislegur og þetta var bara gaman. Nú er ég búin að ná að svara spurningunni sem ég spurði sjálfa mig svo oft að á tímabili þegar ég var við það að gefast upp og hætta við þetta allt, Af hverju?? Af hverju er ég að þessu??? kom oftar en ekki upp í kollinn. Og svarið kom á laugardaginn, þetta er svoooo gaaaammaaaaan. Að vera uppskera allt erfiðið og vera bara sáttur með sjálfan sig, og loksins, já loksins fá súkkulaðirúsínurnara langþráðu og rauðvínið og vera heldur betur búin að vinna inn fyrir því, það er bara ekki hægt að lýsa þessari tilfinningu Ég náði einnig að vera betri á þessu móti heldur en á því síðasta, náði núna að halda betur í vöðvamassan þó svo að ég hafi aðeins rýrnað síðustu vikuna, það er þetta árangur út af fyrir sig og ég ætla mér að gera enn betur á næsta móti og koma sterkari til leiks. Ég ætla ekki að missa mig eins og ég gerði eftir síðasta mót í sukkið algjörlega, þannig að í janúar þegar ég fer að skera niður aftur ætla ég mér ekki að vera að fara að taka af einhver 15 kíló eins og ég þurfti að gera núna. Jebb, mín var aðeins of dugleg að borða í sumar. Nú er ég bara búin að prófa það og veit hvernig það er, EKKI gaman!!! Svo ég hlakka bara til að halda áfram og gera enn betur næst  Mig langar líka að þakka kærlega fyrir mig, þið öll sem komuð og öskruðu á mig á laugardaginn úr salnum, “brosa Kristín!!”. Það er ómetanlegt að eiga svona mikið af vinum sem koma til að styðja við bakið á manni og ég tala ekki um að smyrja á mann leðjunni í upphafi. Hefði ekki komist í gegnum þetta án ykkar, það er alveg á hreinu. Eftir mótið fórum við svo nokkur út að borða til að fagna þessu, og VIP hópurinn gaf mér smá pakka, sem kom mjög á óvart. Og hvað haldiði að hafi verið í pakkanum......jú jú súkkulaðirúsínur og rauðvín, ásamt fleira góðgæti. Kannski ekki skrýtið að ég hafi fenigð þetta því það var ekkert annað sem komst að í hausnum á mér undir lokin en hvað ég hlakkaði til að fá súkkulaðirúsínur og rautt Ég er því bara sátt með allta saman og allur þessi undirbúningur var vel þess virði, ekki spurning. Kv. Kristín Birna Ps. Myndir koma inn síðar, er enn í vinnslu
»
23.11.2007 12:38:52 / kristinbirna
Þá er bara að koma að þessu. Er varla að trúa því að mótsdagur sé í alvöru á morgun, þetta er búið að líða frekar hratt en auðvitað líka hægt á köflum. Ég var búin að hafa svo miklar áhyggjur í þessum niðurskurði að ég yrði nú allt of mjó eins og ég var síðast og farin að ganga á vöðvana undir lokin. Það var eitthvað sem ég vildi ekki að myndi gerast núna svo ég tók niðurskurðinn aðeins örðuvísi með tilliti til þess. En þá komu bara aðrar áhyggjur í staðin sem voru þannig að ég var farin að vera hrædd um að verða bara of fituhá á mótsdag. Núna þegar það er rétt rúmur sólahringur í mót er ég bara nokkuð ánægð með stöðuna. Er ekki eins „mjó“ og á síðasta móti og tel mig vera aðeins vöðva meiri núna þó svo það sé ekki mikið, en æfingin skapar meistarann jú!! Við það að fara aftur og aftur í gegnum svona ferli lærir maður alltaf betur og betur á sjálfan sig og veit hvað maður getur leift sér og hvað ekki, þannig að næst þegar ég keppi þá ætti ég að þekkja sjálfa mig betur sem ætti að skila sér í betri árangri Í dag er ég tæp 59 kg en veit ég ekki nákvæmlega fitu prósentu, en á föstudag fyrir viku síðan var ég 9 % fita. Þannig að ég er bara heldur sátt við sjálfa mig og ánægð að hafa farið út það að keppa aftur, því mér er sagt að þetta verði auðveldara með hverju skiptinu...vonum það alla vega  Keppnin hefst á morgun kl 17 og er í Austurbæ. Miðasala er á midi.is og ég vonast til að sjá ykkur sem flest. Kv. Kristín Birna ps. var að heyra að gógó píurnar séu byrjaðar að æfa sig fyrir morgundaginn, ekki minni átök í því út í sal heldur en í pósum á sviðinu 
»
20.11.2007 15:47:17 / kristinbirna
Þá er að koma að þessu, komið að síðustu vikunni. 12 vikur búnar og bara ein eftir, íhaaa! Nú telur maður ekki bara dagana fram að móti heldur líka æfingarnar sem eftir eru því það er ekki laust við að maður sé orðin nokkuð langþreyttur. Það eru sem sagt 2 æfingar eftir núna fram að keppni, það er ekki neitt  .....og það verður svo notalegt að fá smá frí frá æfingum til að safna kröftum. En nú eru bara skemmtilegir tímar framundan. Vatnslosunin er komin á fullt, mataræðið breyttist íu gær, tek smá kolvetnasvelti (ekki alveg samt) í dag og á morgun, og svo hefst hleðslan á fimmtudag og föstudag. Síðan þarf að klára að gera og græja allt sem þarf fyrir stóra daginn, jibbí jei!. Verð að segja frá því að Orri hitt vin sinn um helgina sem hafði hitt nokkrar af vinkonum mínum í bænum og hann hafði spurt þær hvar ég væri. Þá kom frá þeim eitt besta svar sem ég hef heyrt “Æi, hún er bara heima að borða kjúkling”, sem lýsir mjög vel síðustu vikum í mínu lífi  ....en ekki mikið lengur því á laugardaginn verður sko tekið á því átinu, þá ætlar mína að drukkna í nammiskálinni og fljóta í rauðvíni  aaaaa hvað ég hlakka til!!!! Það verður bara gaman  Kv. Kristín Birna
»
14.11.2007 08:37:23 / kristinbirna
Alright!! Þá eru 10 dagar í mót og ekki laust við að pirringurinn sé farin að ráða ríkjum á þessum bænum Fann ekki lyklana mína þegar ég var að fara út í morgun og setta allt á annan endann heima við að reyna að leita af þeim og allt kom fyrir ekki, bara fann þá ekki. Það var nóg til þess að ég strunsaði pirruð út í morgun kl 6:10 sem er sá tími sem ég vil vera komin á hlaupabrettið í Hreyfingu, urrrr Vakti auðvitað Orra greyið í öllum látunum Algjör!! Svo þegar ég kom niður í Hreyfingu og Stína ætlaði að fara eitthvað að tala við mig urraði ég bara á hana og tók alveg eipið á þetta, ekki gott mál. En ég náði að vera komin á brettið kl 6:20 og fékk mína útrás þannig að ég varð aðeins rólegri í skapinu eftir á, samt ekki nógu. Oddur frændi náði aðeins að fá frænku sína til að brosa  En ég fór því að hugsa, váááá, þetta hefur ekki gerst áður að ég taki svona svakalega mikið pirrings kast á fólkinu í kringum mig. Þessi blessaði niðurskurður er því greinilega farin að segja til sín. Svo þið sem lentuð í mér í morgun þá vil ég bara biðjast afsökunar á þessum látum í mér og vona að þið fyrirgefið mér  Ég held samt að það hafi ekki endilega verið það að ég hafi ekki fundið lyklana mína frekar en að eitthvað annað hafi komið upp á. Held að þetta hafi bara verið dropin sem fyllti mælinn og allt sprakk. Ég fór nefnilega í mælingu í gær sem mér fannst ekki koma neitt allt of vel út, hefði viljað sjá lægri tölu, plús það að ég var búin að standa í stað á vigtinni í 3 daga þangað til í morgun þegar hún fór aðeins niður, og sem betur fer, veit ekki hvað hefði gerst ef ég hefði séð sömu töluna enn einn morguninn í röð. Finnst ég bara ekki eiga það skilið miðaða við vinnuna og erfiðið sem ég er að leggja í þetta. En núna er þá bar að klára dæmið hætta að vera pirruð og reið út í allt og alla og vera jákvæð, því að ég veit að það á eftir að ganga miklu betur þegar ég sé það jákvæða í hlutunum, plús það að það verður miklu skemmtilegra þegar mótsdagurinn rennur upp ef maður er í góðu skapi fram að móti  Nú er því bara að fara í Pollýönu leik og hafa gaman að þessu!! Kv. Kristín Birna
»
11.11.2007 22:23:27 / kristinbirna
Já tímin er sko búin að líða frekar hratt, en samt núna þegar maður er að klára síðustu dropana mætti tímin alveg líða hraðar, en þetta hefst á endanum. Ég farin að hlakka svo til að fá smá rauðvín og súkkulaði, það verður næs, enda er maður búin að vinna inn fyrir því sem gerir þetta enn þá betra  Nú er allt bara að verða klárt og ég að verða búin að redda öllu sem þarf að redda...svona næstum því 
kv. Kristín Birna
»
05.11.2007 10:08:47 / kristinbirna
Jæja nú er maður orðin despret!!! Þegar tyggjó tegundirnar í töskunni eru orðnar 9 talsins, þá þarf maður að fara að leita sér hjálpar, er það ekki??  Nei nei, ég segi svona, en í alvörunni þá var ég að ná mér í tyggjó og fann 9 mismundandi tegundir í töskunni, held maður sé ekki í lagi  Nú eru bara 19 dagar eftir og heldur betur sem þarf að harka þetta í lokin, hætta allri uppgjafar husgun og klára dæmið, fyrst maður er nú einu sinni komin þetta langt  kv. Kristín Birna
»
27.10.2007 14:29:02 / kristinbirna
4 vikur til stefnu og nú þurfa hlutirnir að fara að gerast. Er búin að ætla í fitumælingu til Valdísar alla vikuna en það er ekki alveg að hafast, en það kemur að því. Vigtin er þó að þokast núna niður á við og ekki laust við að maður sé aðeins farin að sjá breytingar, loksins loksin  Ég er núna búin að bæta við auka brennslu inn í prógrammið alla daga nema einn, á einn frídag í viku sem er algjört möst. Þannig að ég tek tvær brennslur á dag og lyfti auðvitað líka, fram að móti. Nammidagarnir eru einnig dottnir út ..... en það verður bara meira gaman að fá sér eitthvað gott þann 24. nóvember, íha!!! Aðal áhyggju efni mitt fyrir þetta mót var að verða ekki eins rosalega grönn og ég var síðast. Ég var alveg farin að ganga á vöðvana mína fyrir síðasta mót og ekki mikið eftir af því litla sem ég hafði, svo núna held ég að ég standi betur að vígi. Er ca. 2 kílóum þyngri núna heldur en ég var á sama tíma í niðurskurði, miðað við mót, og síðast. En það er orðið soldið langt síðan ég fór í fitumælingu þannig að ég er að vona að fituprósentan sé komin töluvert niður svo þessi ca 2 kíló séu meira vöðvamassi heldur en fita en það kemur vonandi í ljós fljótlega. Loka spretturinn framundan og ég skal, get og ætla að klára þetta. Ekki spurning, nú er bara of seint að gefast upp, enda er það ekki í boði, takk fyrir!!
kv. Kristín Birna
»
16.10.2007 16:16:03 / kristinbirna
39 dagar í mót, vááá hvað tíminn líður hratt, ekki hægt að segja annað. Úff, það er ekki laust við að það fari að læðast hnútur í magann og sérstaklega þar sem skráningin er byrjuð inn á fitness.is. Skráningin stendur til 18. nóv svo það er enn nægur tími  En að niðurskurði, þá var ég að koma heim frá Róm í morgun. Var yfir helgina í 3 daga, æðislegt veður allan tíman, sól og 25 stiga hiti, ekki leiðinlegt það. Við komuna heim var fjárfest í tveimur kartonum af Extra Sweet Mint Sugarfree Gummi í fríhöfninni enda nauðsynlegt að eiga nóg að því svona á loka sprettinum þegar það er það eina „sæta“ sem má leifa sér. Ég er að verða eins og keðjureykingamaður sem kveikir í næstu með síðust, nema við erum að tala um tyggjó, og já því er alveg skipt nokkuð reglulega út fyrir nýtt og ferkst Er að verða nokkuð vel þjálfuð í kjálkanum því mín er ekki heldur bara með eitt í einu, tvö er algjört lágmark á þessum bænum. En aftur að Róm, það átti auðvitað að vera svaka flott Fitness-center á 4-stjörnu hótelinu sem ég var á, en þar sem þetta var alveg splúnku nýtt hótel að þá var Fitness-centerið barasta ekki tilbúið og þvílík vonbrigði. Ég fór því í staðin bara út að hlaupa en náði ekkert að lyfta, það verður því bara tekið á því enn betur í vikunni. Svo var mikið áhyggjuefni þegar ég fór út að ég myndi nú borða eitthvað sem ekki mátti fara inn fyrir og safna slatta af hitaeiningum en svo varð nú ekki raunin því maður var alveg non stop allan tíman að skoða hitt og þetta svo það gafst lítill tími til þess að borða, ef eitthvað er þá fór aðeins of lítið of lítið inn, en ég bætti það nú aðeins upp á „nammideginum“ sem ég átti En eins og ég sagði þá eru bara 39 dagar í mót og heldur betur sem það þarf að fara að spýta í lófana og harka þetta eins og maður getur, það þýðir ekkert að gefast upp núna, allt of stutt í þetta til að fara að gefast eitthvað upp núna kv. Kristín Birna
»
09.10.2007 16:27:43 / kristinbirna
Komin í gang með nýtt lyftinga prógramm sem Valdís setti saman fyrir mig, komin tími til að breyta um prógramm Skvísan ætlar að fylgjast með mér og hjálpa mér að settu marki, sem er bara æðislegt því maður er svo blindur á sjálfan sig Það eru svo margir alltaf að spyrja mig hvort þessi undirbúningur sé ekki alveg rosalega erfiður, og þá að vera æfa svona mikið og fara í gegnum allt mataræðið. Svo eru líka sumum sem finnst allt í lagi að vera æfa mikið en spyrja mikið út í mataræðið, hvort það sé ekki erfitt að fylgja því eftir. Svo...ég fór aðeins að hugsa og spá aðeins í þetta og hvað maður er í raun að leggja á sig í undirbúning fyrir keppni sem þessa. Auðvitað eru einhverjar fórnir sem þarf að færa en á endanum finnst manni það alveg þess virði. Eins og með mig, þá finnst mér gaman á æfingu (í flestu tilvikum ) þannig að mér finnst í sjálfu sér ekki svo erfitt að fylgja æfingaráætluninni eftir (þó svo að það komi auðvitað dagar þar sem maður er örlítið þreyttari en aðra, sem er kannski bara eðlilegt) Hvað mataræðið varðar, þá er það eitthvað sem venst og kemst upp í ákveðna rútínu. Auðvitað væri ég alveg til í einn mola úr nammiskálinni inn á kaffistofu en löngunin í nammið er ekki eins sterk og löngunin í það að komast upp á svið í góðu formi. Auk þess er þarna ákveðin dagsetning sem verið er að horfa til og maður veit að það styttist alltaf og styttist í það að maður geti borðað „mat“ eins og „venjulegt“ fólk.Og þá spyr maður sig, af hverju er þetta þá ekki bara alveg rosa auðvelt að undirbúa sig fyrir mót og fara í gegnum allan pakkann og í leiðinni ekkert mál að keppa í fitness???Svarið við þeirri spurningu er held ég STÖÐNUN. Að hamast og hamast bæði á æfingum og í mataræði og svo gerist EKKERT, ekki gaman. Það er það sem mér finnst erfitt við þetta, algjörlega!!! En það þýðir lítið að spá í það heldur halda bara áfram, breyta einhverju í mataræði eða æfingum og svo með tímanum lærir maður á sjálfan sig og sér betur hvað hentar best hverju sinni. kv. Kristín Birna
»
01.10.2007 12:17:05 / kristinbirna
Það var vigtun á laugardaginn, eins og alla laugardaga hjá mér, og viti menn, vigtin er bara að þokast niður á við, íha! Síðasta vika var sem sagt góð vika, ég fann það á mér Ótrúlegt hvernig maður finnur það á sér hvort eitthvað sé að gerast eða ekki. Á laugardaginn fór ég líka í kynningartíma í JumpFit í Sporthúsinu hjá Valdísi, og váááá.... þetta er svo gamaaaan. Get alveg gleymt mér í þessu og þvílík brennsla sem á sér stað, sem skemmir ekki fyrir Eftir tíman keypti ég svo band svo nú get ég farið að æfa mig í að sippa. Vona að með æfingunni hætti mig að svíða eins svaka lega í axlirnar og upphandleggina, en það eru þau svæði sem ég þreytist hvað mest í við að sippa. Þannig að nú er ég búin að auka við fjölbreytnina í brennslunni, get farið að skipta út eitthvað af tækjunum í staðin fyrir sippið  En nú er komin ný vika og tæpar 8 vikur til stefnu. Niðurskurðurinn mjakast áfram hjá mér og allt á réttri leið, alla vega enn þá. Er að fara í mælingu fljótlega svo ég krossa bara fingur og vona að útkoman verði góð  kv. Kristín Birna
»
Síður: 1 2 3 ... 9
|
Bikarmót 24. nóv
Fyrir 845 dögum
|